Þú getur breytt lífi þínu. Þú þarft ekki að að bíða árum eða jafnvel mánuðum saman með þessa breytingu. Hún byrjar um leið og þú hellir þér út í andlega viðleitni. Reyndu að lifa andlega öguðu lífi í einn einasta dag. Þér mun örugglega takast það.
Sri Chinmoy
Nemendur Sri Chinmoy hafa stofnað setur víðsvegar um heiminn, m.a. á Íslandi. Setrið er nokkurs konar andlegt heimili fyrir meðlimina þar sem þeir koma saman til hugleiðslu og bæna og hlýða á andlega tónlist. Setrið er líka virkur fulltrúi kenninga Sri Chinmoy með námskeiðshaldi og öðrum uppákomum fyrir almenning.
Ókeypis hugleiðslunámskeið
Sri Chinmoy setrið er í fararbroddi varðandi námskeiðshald í hugleiðslu á heimsvísu. Að ósk Sri Chinmoy er boðið upp á námskeiðin án endurgjalds, af þeirri sannfæringu að andlegt líf sé réttur hvers manns og geti aldrei gengið kaupum og sölum. Meira en 10.000 manns hafa sótt námskeiðin okkar á Íslandi.
Hafi vaknað áhugi hjá þér að læra hugleiðslu, vinsamlegast hafðu þá samband við okkur á hugleidsla.org.
Tónleikar og menningarviðburðir
Setrið hefur einnig staðið fyrir sýningum fyrir almenning á andlegum listaverkum, tónleikum og ljóðalestri svo eitthvað sé nefnt.
Íþróttir
Sri Chinmoy hvatti nemendur sína til að stunda íþróttir sem hluta af sínu andlega lífi. Við hlaupum oft saman og höldum óformlegt tveggja mílna kapphlaup kringum Reykjavíkurtjörn alla laugardagsmorgna.
Við höfum einnig skipulagt Vatnsmýrarhlaupið árlega en það er 5 km hlaup.
Fyrirtæki á vegum nemenda
Sri Chinmoy hvatti nokkra af nemendum sínum til að stofna fyrirtæki. Í þessum fyrirtækjum er útgangspunkturinn ekki fjárhagslegur hagnaður heldur þjónusta við viðskiptavinina. Sri Chinmoy gaf þessum fyrirtækjum nöfn sem endurspegla þær andlegu hugsjónir sem leið hans byggir á.
Einstaklingar í Sri Chinmoy setrinu á Íslandi hafa opnað Kaffihúsið Garðinn (Ecstasy´s Heart-Garden) og hljóðfæraverslunina Sangitamiya á Klapparstíg.
Video
Sri Chinmoy fer í heimsókn á Kaffihúsið Garðinn árið 2000
Saga setursins á Íslandi
1973 Fyrsti fyrirlesturinn um heimspeki Sri Chinmoy
1974 Fyrirlestur Sri Chinmoy í Háskóla Íslands
1975 Fyrsta bókin eftir Sri Chinmoy í íslenskri þýðingu
1975 Fyrirlestrar Sri Chinmoy í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Borgarbíói á Akureyri
1985 Sænski tónlistarhópurinn Akasha hélt tónleika í Tónskóla Sigursveins, Reykjavík
1987 Setrið stóð fyrir 7 mínútna friðarstund í samstarfi vð aðra friðarhópa
1987 Friðarhlaupið fer sína fyrstu ferð hringinn í kringum Ísland. Síðan þá hefur verið hlaupið hringinn í kringum Ísland með logandi friðarkyndilinn árin 1989, 1998, 1999, 2005, 2006, 2009, 2011, 2013 og 2015, auk smærri Friðarhlaupa og einstakra viðburða.
1987-1988 Setrið stóð fyrir útvarpsþætti
1988 Friðartónleikar Sri Chinmoy í Háskólabíói
1988 Setrið gaf út plötuna Mantric Flowers
1989 Sri Chinmoy hélt Friðartónleika í Langholtskirkju
1993 Reykjavík tileinkuð sem friðarhöfuðborg og Mosfellsbær, Garðabær, Kópavogur og Hafnarfjörður tileinkaðir friðarbæir
1993 Vasa útgáfan gaf út Andlát og endurholdgun og Hugleiðsla: spurningar og svör eftir Sri Chinmoy
1994 Sri Chinmoy maraþonliðið á Íslandi hóf 5 km hlaup sem hefur verið í gangi ár hvert síðan
1995 Vasaútgáfan gaf út Friður á jörðu
1995 Vasaútgáfan gaf út Móðuraflið - Kundalini jóga
1997 Setrið gaf út plötuna Power and Peace
1997 Söngvarar úr setrinu sungu fyrir framan allar kirkjur í Reykjavík í minningu móður Teresu
1998 Setrið skipulagði sýningu á friðarteikningum barna í Kringlunni
1998 Setrið hóf að gróðursetja tré með það fyrir augum að gróðursetja 27.000 tré til að halda upp á lúkningu Sri Chinmoy á 27.000 ljóðum í röðinni 27.000 Aspiration Plants
1999 Ísland var útnefnt Sri Chinmoy friðarland
1999 Heilsubúðin Góð heilsa, gulli betri (Health, the richest wealth) var opnuð
2000 Kaffihúsið Garðurinn (Ecstasy´s Heart-Garden) var opnað
2000 Sri Chinmoy hélt Friðartónleika í Háskólabíói
2001 Sýning á myndlist Sri Chinmoy í Ráðhúsi Reykjavíkur
2005 Hljóðfæraverslunin Sangitamiya opnuð
2010 Tónleikar ensku hljómsveitarinnar Temple-Song-Hearts í Fríkirkjunni í Reykjavík
2011 Setrið skipuleggur tónleika hins þekkta rússneska tónlistarmanns Purushottama Boris Grebenshikov í Reykjavík þar sem margir tónlistarmenn í alþjóðlega Sri Chinmoy setrinu taka þátt
2011-2013 Friðartré gróðursett í nær öllum sveitarfélögum á Íslandi í tengslum við Friðarhlaupið.
2011 Sýning á kvikmyndinni Challenging Impossibility um lyftingar Sri Chinmoy, sem og sýning á þeim búnaði sem hann notaði við lyftingarnar
2011 Alþjóðlegi sönghópurinn Oneness-Dream stofnaður af Snatak Matthíassyni frá Íslandi og heldur í sína fyrstu söngferð um Ísland
2012 Tónleikar Songs of the Soul, alþjóðlegrar tónleikaraðar til heiðurs tónlist Sri Chinmoy, haldnir í Hörpu
2012 Friðarhlaupið heimsækir Færeyjar í fyrsta sinn og svo aftur árin 2014 og 2017.
2014 Tónleikar í tilefni 40 ára afmælis fyrstu heimsóknar Sri Chinmoy til Íslands
2015Songs of the Soul tónleikar haldnir í Reykjavík og á Akureyri
2015 Nirbhasa Magee, meðlimur íslenska setursins, lýkur lengsta götuhlaupi heims - Sri Chinmoy 3100 Mile Race. Hann hefur lokið því fjórum sinnum milli áranna 2015 og 2020.
2016 Tónleikar svissnesku hljómsveitarinnar Celestial Ground í Reykjavík
2016 Friðarhlaupið heimsækir Grænland. Nuuk er tileinkuð Sri Chinmoy friðarhöfuðborg
2017 Stuttmyndin Seeker, um Snatak úr setrinu og baráttu hans við taugasjúkdóminn MND, er frumsýnd á RIFF kvikmyndahátíðinni
Video
2017 Tónleikar Blue Flower í Fríkirkjunni í Reykjavík
2018 Setrið gefur út plötuna Many Many Lives Ago
2019 Tónleikar búlgörsku hljómsveitarinnar Inspiration-Flames í Fríkirkjunni í Reykjavík
2020 Suballabha, meðlimur íslenska setursins, gefur út plötuna My Gratitude-Heart